09.04.1947
Neðri deild: 108. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1988 í B-deild Alþingistíðinda. (2552)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Ólafur Thors:
Ég vil aðeins gera örstutta aths., vegna þess að mín hefur verið getið í umr. um þetta mál. Ég er meðal þeirra manna, sem ekki láta sér til hugar koma, að hæstv. forsrh. hafi sagt neitt af því, sem hér um ræðir og eftir honum er haft. Það er rétt, eins og hann tók fram, að Íslendingum er kunnugt um, að hann hefur ekki þessar skoðanir og þessi ummæli standa öll í öfugu hlutfalli við stefnu hans og framkomu í þessu máli. Varðandi efnishlið málsins má slá því föstu, að eðli málsins mælir gegn því, að hæstv. forsrh. hafi sagt það, sem honum er lagt í munn. Og þótt einhverjir blaðamenn, meira og minna merkilegir og ómerkilegir, komi hingað og fari að segja okkur, hvað liggi í samningi, sem við höfum gert og þekkjum út í yztu æsar og vitum, undir hvaða kringumstæðum er gerður og hvað í honum felst, þá finnst mér ekki, að það gefi tilefni til að ætla, að um nýtt andlegt Heklugos sé að ræða, og það mætti æra óstöðugan að rjúka upp í hvert skipti og andmæla. Ég mundi svara Svíunum, er þeir töluðu um frelsisskerðingu okkar: Maður líttu þér nær. Þeim er bezt að hugsa um, undir hvern þeir eru farnir að þjóna, ef þeir hafa of þungar áhyggjur af okkur.
Það er bezt, að þeir láti okkur í friði og við þá. Hitt er svo annað mál og kemur þessu máli ekkert við, hvort við ræðum hér í þinginu framkvæmd þessa samnings og málið í heild sinni.