05.05.1947
Sameinað þing: 50. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1993 í B-deild Alþingistíðinda. (2564)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Einar Olgeirsson:

Aðeins örfá orð út af því, hvort Keflavíkursamningurinn sé frávik frá íslenzkri sjálfstæðisákvörðun. Þær heimildir eru frammi á Reykjanesi, og þar er hægt að sjá, hvernig erlendur her stjórnar á Íslandi í staðinn fyrir íslenzka ríkisstj. Þar blasa lögbrotin við okkur, ekki aðeins okkur til skammar, heldur líka útlendingum.