05.05.1947
Sameinað þing: 50. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1993 í B-deild Alþingistíðinda. (2566)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Einar Olgeirsson:

Vill hæstv. ríkisstj. láta stöðva í dag alla herbíla, sem hér sjást stundum, og allan innflutning þar, sem fer ekki gegnum íslenzkt tolleftirlit, og innflutning á mönnum, sem klæddir eru amerískum einkennisbúningum og koma hingað án þess að fá landvistarleyfi? Vill hún láta stöðva öll lögbrot, sem fara fram á Keflavíkurflugvellinum nú sem stendur, brot á öllum l., sem yfirleitt er hægt að brjóta þar? Þegar íslenzka ríkisstj. hefur gert þetta, skal ég tala nánar um þetta.