12.05.1947
Neðri deild: 126. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1998 í B-deild Alþingistíðinda. (2578)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) :

Það fór nú því miður dálítið fram hjá mér, sem hv. þm. sagði, en mér heyrðist þó, að hann væri að spyrja um það, hvort verið væri með stórar framkvæmdir á flugvöllum ríkisins, en þar er ekki um neinar stórframkvæmdir að ræða af Íslendinga hendi. Raunar var nokkur fjárlagaheimild veitt í þessu skyni í fjárlfrv. til endurbóta, sem vafalaust verður notuð. En engin stórvirki standa þar fyrir dyrum.