12.05.1947
Neðri deild: 126. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1999 í B-deild Alþingistíðinda. (2579)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Jónas Jónsson:

Ef hæstv. ráðh. hefur ekki tapað heyrninni, vona ég, að hann geti svarað betur, og endurtek spurninguna: Hve margar millj. er íslenzka ríkið búið að leggja í báða flugvellina? Er rétt, að það sé á 7. milljón? Hve margir menn eru að störfum á hvorum flugvellinum fyrir sig, og hve miklar tekjur hafa þeir?