25.02.1947
Neðri deild: 81. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2004 í B-deild Alþingistíðinda. (2600)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Ásgeir Ásgeirsson:

Herra forseti. Þessari síðari fyrirspurn var beint til mín, en ekki til hæstv. forseta. Hv. fyrirspyrjanda er kunnugt um það, að n. hefur nýlega borizt umsögn frá landsbankastjórn, en landsbankastjórn fékk þetta mál til álita. Það kom álit frá meiri hl. og minni hl. bankaráðs Landsbankans, og ég hef séð um það, að hv. flm. frv. fengi þetta til lestrar. Að sjálfsögðu verður þetta allt athugað í n., þegar allir nm. eru búnir að sjá þessar umsagnir.