24.05.1947
Efri deild: 147. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2050 í B-deild Alþingistíðinda. (2650)

Starfslok deilda

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson) :

Ég ætla, að ég muni mæla fyrir hönd dm., er ég þakka forseta fyrir góða og röggsama fundarstjórn á þessu þingi og sömuleiðis fyrir góðar óskir hans í garð okkar, sem hér eigum sæti, og um leið óska ég þess, að hæstv. forseti megi heill heim koma og heill aftur koma til þings, og óska ég honum og fjölskyldu hans alls hins bezta á þessu sumri og gleðilegrar hátíðar. — [ Dm. tóku undir með því að rísa úr sætum. ]