23.05.1947
Sameinað þing: 58. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2021 í B-deild Alþingistíðinda. (2677)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (JPálm) :

Mér hefur borizt bréf frá hæstv. forseta Nd., dags. í dag, og hljóðar það svo : „Hallgrímur Benediktsson, 3. þm. Reykv., hefur 21. þ. m. ritað mér á þessa leið:

„Með því að ég fer til útlanda á morgun í viðskiptaerindum og verð fjarverandi næstu vikur, óska ég þess, með skírskotun til 144. gr. laga nr. 80 1942, um kosningar til Alþingis, að varamaður, Axel Guðmundsson skrifstofumaður (1. varamaður, Björn Ólafsson stórkaupmaður, er forfallaður) , taki sæti mitt á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Forseti neðri deildar.

Garðar Þorsteinsson.“

Kjörbréfanefnd hefur fengið umrætt kjörbréf til athugunar, og mun hv. frsm. nefndarinnar gera grein fyrir niðurstöðu hennar.