13.12.1946
Neðri deild: 37. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1628 í B-deild Alþingistíðinda. (2713)

109. mál, nýjar síldarverksmiðjur

Frsm. (Einar Olgeirsson) :

Herra forseti. Atvmrh. sendi fjhn. þetta frv. með tilmælum um, að hún flytti það, og það hefur n. gert, en að sjálfsögðu hafa einstakir nm. óbundnar hendur um afstöðuna til málsins. Þetta frv. þarf ekki langra skýringa við, og vísast í því sambandi til ýtarlega fskj., er fylgja frv. Hér er aðeins lagt til, að breytt verði þeirri fjárupphæð, sem ríkisstj. heimilast að taka til láns til síldarverksmiðjanna, sem reistar eru á þessu ári. Fjhn. leggur til, að máli þessu verði vísað til 2. umr., og skýringar á því liggja alveg í fskj.