05.05.1947
Efri deild: 125. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1660 í B-deild Alþingistíðinda. (2753)

109. mál, nýjar síldarverksmiðjur

Páll Zóphóníasson:

Það hefur komið fram undir umr. og hefur verið lofað af hæstv. fjmrh., að hann muni láta rannsaka þetta mál, svo að það síðar gæti legið ljósar fyrir en það gerir nú, og hef ég frétt það, að samkomulag hafi orðið um að láta tvo endurskoðendur endurskoða þessi mál, en að þetta eigi aðeins að vera talnaleg endurskoðun. Í trausti þess, að hæstv. fjmrh. sætti sig ekki við slíka endurskoðun heldur láti fara fram miklu víðtækari, krítiska endurskoðun, segi ég já.