13.01.1947
Efri deild: 49. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1696 í B-deild Alþingistíðinda. (2852)

10. mál, útsvör

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég vil benda á það, að í fyrra var borin fram till. um að skipa n. til að athuga útsvarslögin. Sú till. var ekki samþ., en n. var skipuð samt og átti að hafa lokið störfum fyrir 1. febr. n. k. Hún er nú að vinna að þessu og einn nm. tjáði mér, að því yrði lokið á réttum tíma, en mér finnst það undarlegt, ef d. afgreiðir nú þetta mál, sem ríkisstj. hefur skipað mþn. til að athuga, rétt þegar sú n. er að ljúka störfum.