10.04.1947
Efri deild: 112. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 94 í B-deild Alþingistíðinda. (290)
221. mál, bifreiðaskattur
Forseti (ÞÞ):
Mér hefur borizt brtt. við frv., frá hv. 3. landsk. þm. (HV), svo hljóðandi: „Við c-lið 1. gr. Á eftir orðinu „fólksflutninga“ komi: enda skráðar sem fólksflutningabifreiðar — og síðan liðurinn óbreyttur til loka. — Brtt. er skrifleg og of seint fram komin, og verður því að leita afbrigða fyrir henni.