06.05.1947
Neðri deild: 122. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1816 í B-deild Alþingistíðinda. (3126)

116. mál, nýjar síldarverksmiðjur á Norðurlandi

Forseti (BG) :

Ég vil upplýsa út af ummælum hv. 2. þm. N-M, að forseta voru ekki tilkynnt forföll vegna veikinda. Annað hef ég ekki að segja í þessu sambandi en að reynt er að hraða þingmálum, er svo er liðið á þingtímann, og meir en á öndverðu þingi.