11.04.1947
Neðri deild: 111. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í B-deild Alþingistíðinda. (314)
221. mál, bifreiðaskattur
Hallgrímur Benediktsson:
Herra forseti. Mig langaði aðeins til að skjóta þeirri fyrirspurn til hv. 2. þm. Reykv., hvort það sé rétt tekið eftir hjá mér, að hann hafi sagt, að „Hreyfill“ hafi á þessu ári aðeins fengið einn bíl með verksmiðjuverði, en orðið að kaupa hina á svörtum markaði (EOI: Einn af 9 síðustu bílum.) Ég tel þá rétt að koma fram með þær upplýsingar, sem ég tel fyllilega réttar, um leið og ég tek það fram, að ég er fyllilega sammála hv. 2. þm. Reykv. um það, að þessi stétt, bílstjórarnir, eigi að geta notið sín eins og hver önnur og bera ekki minna úr býtum en aðrir. En þær upplýsingar vildi ég mega gefa, að frá áramótum mun „Hreyfill“ hafa fengið 10 nýja bíla, 4 frá Ræsi h/f, 4 frá Fordumboðinu, einn frá S.Í.S. og einn frá G.H. Þetta eru 10 bílar, og auðvitað eiga stöðvar sem „Hreyfill“ að sitja fyrir til þess að geta uppfyllt þá skyldu sína að aka almenningi. Þá hafa verið pantaðar 7 Crysler-bifreiðar, sem fara eiga til „Hreyfils“, og vona ég, að þær séu nú á leiðinni, enn fremur ein til Akureyrar og ein til Hafnarfjarðar. Afgreiðslan verður náttúrlega með verksmiðjuverði. Ég held því, að rétt sé að ræða, hvað komið hefur inn af nýjum bifreiðum, þó að „Hreyfill“ verði kannske að sæta afarkostum um bifreiðakaup, en þess ber að gæta, að þegar stöðin endurnýjar bílakost sinn, selur hún sína gömlu bíla út af stöðinni aftur. Þessar upplýsingar vildi ég gefa varðandi bílainnflutning, þegar því er haldið fram, að frá áramótum hafi Hreyfill aðeins getað fengið einn bíl með verksmiðjuverði.