22.04.1947
Neðri deild: 117. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1834 í B-deild Alþingistíðinda. (3155)

211. mál, tollskrá o.fl.

Ásgeir Ásgeirsson:

Hv. þm. Reykv. spurðist fyrir um, hvaða vélar væru teknar til samanburðar um 8%. — Ég vil benda honum á að kynna sér 46. og 47. nr. og 49.–54. nr. í 73. kafla tollskrárinnar, sem hann hefur ekki flutt brtt. um. Í 2% flokki eru aðeins framleiðsluvélar. Ég held, að ekki þurfi fleiri orð um þetta, þar sem n. hefur tekið allar heimilisvélar.