29.04.1947
Efri deild: 123. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1836 í B-deild Alþingistíðinda. (3162)

211. mál, tollskrá o.fl.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson) :

Herra forseti. Þetta frv. til l. um breyt. á l. um tollskrá o. fl. var lagt fram af fyrrverandi ríkisstj. og er nú búið að ganga gegnum hv. Nd. — Ég sé ekki ástæðu til að gera frv. að sérstöku umræðuefni við þessa umr. málsins, að því er einstaka liði þess snertir, en vildi mælast til þess, að hv. d. vildi afgreiða málið til. 2. umr. og hv. fjhn.