22.05.1947
Efri deild: 142. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1861 í B-deild Alþingistíðinda. (3253)

247. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Frsm. (Guðmundur Í. Guðmundsson) :

Það er rétt hjá hv. þm. Barð., að fiskimálasjóði eru tryggðar með annarri löggjöf sömu tekjur, en það er misskilningur, að með þessu sé ekki farið inn á þann hluta, sem honum var ætlaður, og vil ég í því sambandi benda á ummæli hæstv. sjútvmrh. í grg. frv., þar sem segir, að tekjur sjóðsins séu lítillega skertar.