20.02.1947
Neðri deild: 78. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1878 í B-deild Alþingistíðinda. (3327)

102. mál, ríkisborgararéttur

Frsm. minni hl. (Hermann Guðmundsson) :

Herra forseti. Ég vil mælast til þess við hæstv. forseta, að nafnakall fari fram um þær brtt., sem hér liggja fyrir, og að þær verði bornar fram sundurliðaðar, þannig að um hvern einstakan lið verði greidd atkv. út af fyrir sig.