13.05.1947
Neðri deild: 127. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1899 í B-deild Alþingistíðinda. (3408)

8. mál, fiskimálasjóður

Frsm. (Sigurður Kristjánsson) :

Herra forseti. Ég vil aðeins benda hv. 2. þm. S-M. á það, hvort hann sjái sér ekki fært að gera þær aths. og koma fram með brtt., sem hann kynni að vilja gera, fyrir 3. umr., þó að málið fari nú til 3. umr. Það mundi flýta fyrir málinu. Hins vegar held ég, að það mundi ekki spilla fyrir samþykkt brtt., þó að þær kæmu ekki fyrr en við 3. umr. Og ég mun sjá til þess að koma n. saman til þess að ræða þar hans brtt., ef hann kæmi með þær.