23.05.1947
Neðri deild: 143. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1923 í B-deild Alþingistíðinda. (3539)

58. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Sigfús Sigurhjartarson:

Herra forseti. Mér kemur þetta dálítið einkennilega fyrir sjónir. Þetta mál er flutt af fjhn. Ed. Það fór í gegnum þá d., og ég hygg, að því hafi verið vísað til fjhn. þessarar hv. d. á sínum tíma. En ekki liggur fyrir neitt nál. frá henni, og vildi ég gjarnan heyra, af hvaða ástæðu það hefur ekki verið lagt fram.