23.05.1947
Neðri deild: 144. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1957 í B-deild Alþingistíðinda. (3648)

148. mál, vatnsveitur

Samgmrh. (Emil Jónsson) :

Ég get nú ekki gefið hv. 1. þm. Skagf. tryggingu fyrir því, hvað hv. Ed. kann að gera í þessu máli, en vil geta þess, að nú milli umr. hefur verið rætt um málið við fjmrh., sem var áður á því, að málið yrði afgr, í því formi, sem það nú liggur fyrir í frv. En hann hefur tjáð mér, að hann fyrir sitt leyti gæti fallizt á að breyta því í það form, sem hér er lagt til. Virðist mér þá nokkur trygging fengin, þar sem hann bæði á sæti í Ed. og er auk þess fjmrh. og hefur lofað að fylgja málinu eftir á þann hátt.