24.05.1947
Efri deild: 146. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1958 í B-deild Alþingistíðinda. (3653)

148. mál, vatnsveitur

Frsm. (Gísli Jónsson) :

N. var kunnugt um þetta misræmi, en eins og hv. 6. landsk. tók fram, er of seint að laga það, svo að annaðhvort verður að gefa út bráðabirgðal. um þetta eða laga það á næsta þingi, en n. vildi ekki stöðva svo mikils vert mál og láta þetta verða til trafala.