25.11.1946
Efri deild: 19. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 3 í C-deild Alþingistíðinda. (3679)
80. mál, sóknargjöld
Gísli Jónsson:
Ég lýsi því hér með yfir, að ég er algerlega ósamþykkur því fyrirkomulagi, sem hv. síðasti ræðumaður var að boða, að hann mundi gera brtt. um. Fremur ætti þá að taka kirkjugjaldið af tekjuskatti. Ég sé ekki, að það sé á neinn hátt réttmætt að taka útsvörin til að standa undir þörfum kirkjunnar. Eðlilegra væri þá, að ríkissjóður gerði það en bæjar- og sveitarsjóðir. Þetta gjald hefur oft verið tilfinningamál fólksins, en ef á að fara að leggja það á samkv. því, sem hv. 3. landsk. leggur til, taka það af útsvörum eða miða við þau, tel ég það hina mestu fjarstæðu og mun beita mér gegn því af öllum mætti.