15.04.1947
Efri deild: 118. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í C-deild Alþingistíðinda. (3745)

130. mál, almannatryggingar

Hannibal Valdimarsson:

Ég vil taka það fram, að ég tek ekki efnislega afstöðu til breyt. á almannatryggingal. við þessa atkvgr., en legg hins vegar mikið upp úr þeirri umsögn tryggingaráðs, að það vilji ekki leggja til, að gerðar séu breyt. á almannatryggingalöggjöfinni, fyrr en fengin sé reynsla á framkvæmd 1. Með tilvísun til þessa segi ég nei.

2.–9. gr. felldar með 10:1 atkv.

Frv. þar með fallið.