24.02.1947
Neðri deild: 80. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 173 í C-deild Alþingistíðinda. (3879)

49. mál, almannatryggingar

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Það var nokkuð snemma á þessu þingi, að ég bar fram frv. til l. um breyt. á l. um almannatryggingar. Það mun vera hið 49. í röðinni af málum þessa þings. 7. nóv. 1946 var það tekið til 1. umr. í d. og vísað til heilbr: og félmn. Síðan hefur ekkert af því heyrzt. Nú hefði ég talið gott, að sú n. vildi nú eftir svona langan tíma láta eitthvað frá sér heyra um það. Hér mun eitthvað vera á fundi af nm. úr þeirri n., ef til vill allir. Ég vil leyfa mér að beina þessum tilmælum til þeirra, að n. fari að láta uppi álit sitt um málið það fyrsta.