09.05.1947
Efri deild: 129. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í C-deild Alþingistíðinda. (3941)

91. mál, fiskiðjuver á Ísafirði

Steingrímur Aðalsteinsson:

Þó að ég sé því fylgjandi, að reist verði fiskiðjuver ríkisins, og þar á meðal á Ísafirði, þá tel ég réttara að setja um það heildarlöggjöf, en ekki löggjöf fyrir hvern stað um sig. Í trausti þess, að samþ. verði frv. um þetta efni, sem nú liggur fyrir Nd., þá segi ég já við þessari dagskrártill.