16.12.1946
Neðri deild: 38. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 331 í C-deild Alþingistíðinda. (4179)
107. mál, bátaútvegurinn o.fl.
Forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Ég skal ekki rekja efni þessa frv. að sinni, en ég tek undir það, sem hv. form. fjhn. sagði um hinn óvenjulega flutning á þessu máli. Það er nú langt um liðið, síðan ég talfærði þetta við hina ráðh. í ríkisstj., að möguleiki væri á að leysa úr vandræðum útgerðarinnar án verulegrar hættu fyrir ríkissjóð, ef útgerðin héldi fast við að óska íhlutunar ríkisstj. Einn liðurinn hefur komið hér fram holdi klæddur í frv.- formi. Það er aðeins eitt rif. Mér dettur það í hug út af frv. um landshöfn á Rifi. Þetta var ein sú stoð, sem ég vildi veita útvegnum, er ég ræddi um þetta við meðrh. mína, en það var ekkert um þetta skriflegt í skrifsborðsskúffu minni, en þessu máli var vel tekið af þeim ráðh., sem ég talaði við, og var þá minnzt á fleira, sem gerði það aðgengilegt fyrir ríkisstj. að gera ráðstafanir til tryggingar útgerðinni. Ég skal ekki gera þetta að frekara umræðuefni, en þetta mætti hafa í huga.