19.02.1947
Neðri deild: 77. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 386 í C-deild Alþingistíðinda. (4288)

175. mál, æskulýðshöll í Reykjavík

Flm. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Ég get fallizt á, að frv. fari til fjhn. með hliðsjón af því; að hliðstætt frv. er þar. Ég lagði til, að það færi til hv. allshn., af því að frv. um þetta efni hefur áður verið hjá þeirri n., en ég fyrir mitt leyti hef ekkert á móti því, að það fari til hv. fjhn.