12.05.1947
Neðri deild: 126. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 413 í C-deild Alþingistíðinda. (4366)

231. mál, hafnarbótasjóður

Sigurður Bjarnason:

Ég þakka sjútvn. fyrir góða og skjóta afgreiðslu á þessu frv., og skal ég taka það fram, að ég get sætt mig við afgreiðslu hennar. Ég get fallizt á þau rök n., að athuga þurfi betur málið og komi þá fyrir næsta þing, og umorðun 1. gr. finnst mér ekki koma að sök og sætti mig við þessa afgreiðslu.