22.05.1947
Efri deild: 142. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 463 í C-deild Alþingistíðinda. (4463)
160. mál, vatnsveita Reykjavíkur
Pétur Magnússon:
Maður hefur nú oft heyrt talað um hrossakaup á Alþ., en sennilega hefur verið talað um þau í hliðarherbergjunum. Ég hef aldrei heyrt á ævi minni, að þrír þm. stæðu upp hver á fætur öðrum og byðu upp á hrossakaup.. Annað er í raun og veru ekki verið að gera hér, þar sem verið er að reyna að knýja fram mál með hótunum um að fella annað, sem allir menn hljóta að sjá, að hefur fullkominn rétt á sér. Það er vitað, að verið er að koma upp vatnsveitu í Reykjavík, og vitað líka, að þörf er fyrir þessa vatnsveitu, og er þá ekki nema skylt að gera Reykjavík kleift að standa undir henni. Reykjavík er ekki komin upp á styrk, en vill aðeins fá að leggja gjöld á eigin borgara. Ég veit ekkert, hvaða útlit er fyrir, að hitt frv. nái fram að ganga, hef ekki heyrt um það, fyrr en nú við þessa umr. En ef nokkur hætta getur verið á því, að það frv, nái ekki afgreiðslu á þingi, væri ósæmilegt fyrir þessa d. að verða þess valdandi, að þetta mál nær ekki fram að ganga og knýja Reykjavík til þess að standa straum af kostnaðinum af vatnsveitunni, sem verið er að gera núna, með útsvörunum. Ég get ekki hugsað mér annað en hver maður, sem vill hugsa þetta mál með sanngirni, ljái því fylgi sitt.