23.05.1947
Efri deild: 143. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 465 í C-deild Alþingistíðinda. (4477)

160. mál, vatnsveita Reykjavíkur

Gísli Jónsson:

Afstaða mín til málsins á s.l. fundi var ekki mörkuð af því, hvort hitt málið fengi afgreiðslu í Nd., heldur vegna ósæmilegrar framkomu ráðherrans, og ég tel, að hann hafi verðskuldað þá hirtingu, sem d. veitti honum á s.l. nóttu. En með því að ég sé enga hugarfarsbreytingu hjá þessum ráðh., þá breyti ég ekki heldur afstöðu minni og segi því nei.