20.02.1947
Efri deild: 77. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 493 í C-deild Alþingistíðinda. (4501)

167. mál, olíueinkasala

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Það er rétt að benda hv. flm. á það, úr því að hann skilur frv. þannig, að samkv. 3. gr. frv. þarf ríkissjóður að rísa undir öllum smásölukostnaðinum. Meðflm. sagði þetta vera réttan skilning á frv., og þannig er frv. nú. Hv. flm. hefur krafizt, að frv. verði vísað til fjhn., og vænti ég, að hún taki málið til rækilegrar athugunar. Þó mun venjulegra, að svona málum sé vísað til sjútvn.