05.11.1946
Sameinað þing: 7. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í D-deild Alþingistíðinda. (4586)
38. mál, virkjun Andakílsár
Skúli Guðmundsson:
Ég vil leyfa mér að bera fram þá fyrirspurn til hv. þm. Borgf., sem er 1. flm. þessarar till., hvernig hagað hefur verið framkvæmd þessarar stöðvarbyggingar þarna við Andakílsá, þ.e.a.s., hvort stjórn þess fyrirtækis, sem nefnt er Andakílsárvirkjun, hefur sjálf með höndum framkvæmdirnar, ráði t.d. verkstjóra eða verkamenn til að byggja orkuverið og koma upp háspennulínum, sem nú mun vera byrjað að leggja út frá verinu, eða hvort þessi stjórn hafur samið við eitthvert sérstakt fyrirtæki um það að annast þessar framkvæmdir, og þá, hvernig þeim samningum sé háttað í höfuðatriðum, ef þessu er þann veg farið.