22.01.1947
Sameinað þing: 24. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í D-deild Alþingistíðinda. (4600)

100. mál, einkaleyfasafn

Frsm. (Jón Sigurðsson):

Herra forseti. N. hefur athugað þessa till. og orðið ásátt um að skora á ríkisstj. að gera athuganir á efni því, sem till. fjallar um. Það er ekki ástæða að fara frekari orðum um þetta, því að ýtarleg grg. fylgir og enn fremur gerði hv. flm. grein fyrir, hvað fyrir honum vekti, og hefur n. tekið undir álit hans. Sé ég því ekki ástæðu til að endurtaka það.