28.02.1947
Sameinað þing: 33. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í D-deild Alþingistíðinda. (4659)

181. mál, sumartími

Frsm. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. — Till. sú á þskj. 448, sem var hér til umr. í Sþ. í gær, var tekin til meðferðar í allshn. Sþ. í gærkvöld. Þeir, sem mættir voru á fundi, komu sér saman um að gera þá breyt. á till., að í stað „fyrsta sunnudag maímánaðar“ komi: fyrsta dag aprílmánaðar. Tveir nm. voru ekki á fundi, eins og nál. ber með sér, en ástæða er til að ætla, að n. í heild komi sér saman um þessa breyt. — Er þess að vænta, að hæstv. ríkisstj. sjái engin vandkvæði á því að framkvæma þetta mál, er till. með breyt. allshn. fer fram á, ef hún verður samþ.