28.03.1947
Sameinað þing: 40. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í D-deild Alþingistíðinda. (4675)

185. mál, heimilisvélar

Frsm. (Sigfús Sigurhjartarson):

Herra forseti. Allshn. varð sammála um það að mæla með, að þessi þáltill. verði samþ. með þeirri viðbótartill., sem greinir á þskj. 524. Ég tel ekki ástæðu til þess að gefa frekari skýringu á þessu máli, það liggur svo ljóst fyrir. Ég vil aðeins þakka hv. n. fljóta og góða afgreiðslu á málinu og mæli með því fyrir hennar hönd, að þáltill. verði samþ. með þeim breyt., sem n. leggur til.