28.02.1947
Efri deild: 82. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 296 í B-deild Alþingistíðinda. (468)

47. mál, sauðfjársjúkdómar

Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson):

Herra forseti. Ég vildi beina því til hæstv. forseta, hvort hann sæi sér fært að taka þetta mál út af dagskrá nú. Ég tel ástæðu til þess að athuga gaumgæfilega þær brtt., sem hv. 1. þm. N–M. flytur við frv., og mundi ég nota tækifærið til næsta fundar til að skapa mér skoðun um það, á hvaða rökum þær eru byggðar, sem ég hygg, að séu á nokkrum rökum byggðar.