28.03.1947
Sameinað þing: 41. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í D-deild Alþingistíðinda. (4693)

190. mál, togarakaup fyrir Stykkishólm

Frsm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins leiðrétta þau ummæli hv. síðasta ræðumanns, að ég hefði sagt, að breyta þyrfti hlutafélagal. Það sagði ég ekki, en ég sagði, að ýmis skilyrði yrði að setja í þessa till., ef taka ætti upp þann hátt að binda ríkisábyrgðina ekki við hreppinn einan, heldur hlutafélag.