17.04.1947
Sameinað þing: 43. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í D-deild Alþingistíðinda. (4731)
53. mál, meðferð opinberra mála
Finnur Jónsson:
Herra forseti. Út af ummælum hæstv. dómsmrh., að hann muni láta athugun fara fram í dómsmrn. um hraða málsins hjá verðlageftirlitinu, þá vil ég benda á, að hjá allshn. liggur yfirlit yfir gang þessara mála, og vil ég vísa til þess yfirlits, að dómsmrn. hefur haldið á málunum með fullum hraða. Endurskoðun bókhalds tók langan tíma, þar sem fyrirtækið er umfangsmikið, en löggiltir endurskoðendur hins vegar fáir, og enn fremur vildi verðlagseftirlitið, að tiltekinn endurskoðandi yrði látinn framkvæma endurskoðunina hjá fyrirtækinu. En fyrir þá, sem vilja kynna sér þetta nánar, þá liggur skýrsla fyrir hjá allshn., og geta menn athugað hana.