05.05.1947
Sameinað þing: 50. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 105 í D-deild Alþingistíðinda. (4760)
171. mál, eftirlit með verksmiðjum og vélum
Samgmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. — Ég skal ekki lengja þessar umr., en ég vil aðeins út af því, sem hv. þm. Barð. sagði, þar sem hann taldi óverjandi að fella sína till., ef fara ætti út í athugun, svipaða þeirri, sem hér er gert ráð fyrir, láta nægja að vísa til minna fyrri orða um þetta og enda þess, sem hv. þm. V-Húnv. hélt fram nú áðan, að það geta vel komið til álita fleiri aðilar en þeir, sem eru nefndir í till. hv. þm. Barð., sem eru Alþýðusamband Íslands og Vinnuveitendafélag Íslands. Ég viðurkenni þá auðvitað sem mjög stóra aðila, sem hér eigi hagsmuna að gæta og hlutverk að vinna, en engu að síður eru ýmsir aðrir aðilar, sem einnig kæmu til greina í þessu sambandi, a.m.k. þyrfti þeirra till. að leita. Þess vegna held ég, að ekkert sé misst, þó að þessi till. væri felld, ef um leið er lýst yfir því, að tillit skuli tekið til þeirra aðila, sem þar eiga hlut að máli, eftir því sem efni standa þar til.
Mér skilst, að þessi rannsókn muni verða fólgin í því annars vegar að kynna sér hliðstæð l. og reglur í nágrannalöndunum og hvernig þau l. og reglur hafa reynzt og í öðru lagi að kynna sér ástandið í verksmiðjum hér og þá reynslu, sem fengizt hefur, og fá umsögn og skýrslur kunnugra manna, sem við þetta eftirlit eiga að búa. Í fyrstu röð hlýtur þar að koma sá maður, sem með þá framkvæmd hefur að gera, en ekki sem nm. Ég tel ekki rétt, að hann sé í n., heldur sem gefandi upplýsingar eins og aðrir, sem hlut eiga að máli. Ég fel sjálfsagt að leita til hans um upplýsingar eins og til þeirra, sem hann hefur átt að hafa eftirlit hjá, en að hann eigi að rannsaka sitt eigið mál og starfsemi sína, finnst mér ekki koma til greina, þar er ég sammála hv. þm. Barð.
Út af því, að framkvæmd vélaeftirlitsins hafi verið slæm, og út af því, sem hv. þm. Barð. sagði, að lítið eða ekkert væri treystandi á forstöðumann eftirlitsins, þá vil ég alls ekki taka undir það, a.m.k. ekki á þessu stigi, og ég efast um, að það sé rétt að hafa þessi sterku orð um það. Mér er vel kunnugt um, að starf þessa manns hefur að mjög verulegu leyti verið bundið af ráðstöfunum, sem ríkisstj. og aðrir hafa á hverjum tíma gert og hann hefur orðið að haga sér eftir. Mér er t.d. kunnugt um, að fyrrv. ríkisstj. fól honum mikið starf í sambandi við byggingu síldarverksmiðjanna. Ég þóttist sjá í hendi mér, að þegar hann tók það að sér, mundi hann ekki geta rækt önnur störf sín eins og þyrfti, vegna þess að það starf, sem honum var þar falið, var svo umfangsmikið. Hins vegar vildi ég ekki standa í vegi fyrir því, þegar sá ráðh., sem það mál heyrði undir, taldi nauðsynlegt að fá hans starfskrafta til eftirlits við hinar nýju síldarverksmiðjur.
Annað og frekara hirði ég ekki um málið að segja á þessu stigi, en vil aðeins undirstrika það, að ég get mjög vel fallizt á þá umorðun á tillgr., sem kemur fram í áliti meiri hl. n., en ég tel ekki rétt að binda þær till., eins og hv. þm. Barð. vill vera láta.