19.03.1947
Sameinað þing: 36. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í B-deild Alþingistíðinda. (500)

12. mál, fjárlög 1947

Forseti (JPálm):

Það hefur orðið að samkomulagi við formenn þingflokkanna að fresta hinum svokölluðu eldhúsdagsumr. til 3. umr. fjárl. En til þess að fá það formlega samþykkt, þarf að samþykkja afbrigði frá þingsköpum fyrir því. Vil ég nú leita afbrigða fyrir því.