06.02.1947
Sameinað þing: 26. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 267 í D-deild Alþingistíðinda. (5076)

285. mál, nýir vegir og brýr

Gísli Jónsson:

Herra forseti. — Hæstv. samgmrh. lét sér sæma að lýsa því yfir úr ráðherrastól, að ég hafi farið með rangt mál, þótt margyfirlýst sé, að það var rétt. Hann hefur enn fremur látið sér sæma að lýsa því yfir úr ráðherrastól, að flest, sem ég segði hér, væri rangt. Sök bítur sekan, og hefur hann nú engin rök nema stóryrði. Einhvern tíma verða kannske rannsakaðir leyniþræðirnir milli kirkjumrn. og samgmrn. út af Krýsuvíkurveginum, en það bíður síns tíma.