25.04.1947
Sameinað þing: 46. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 529 í B-deild Alþingistíðinda. (586)
12. mál, fjárlög 1947
Ásmundur Sigurðsson:
Það eru aðeins fáein orð út af því, sem hv. frsm. meiri hl. fjvn. vék að mér, þegar hann talaði síóast, en hv. 2. þm. Reykv. tók af mér ómakið að nokkru.
Hv. frsm. byrjaði á að minnast á það, sem ég sagði, að ógeðfellt væri að lækka tillag til byggingar menntaskóla í Reykjavík, og komst hann þar svo að orði, að menntaskólanum hefði verið gerður alls konar óleikur með ráóstöfunum Sósfl., þar sem fyrrv. menntmrh. hefði keypt land undir skólann í Laugarnesi. Ég vil benda honum á, að það var ekki fyrrv. menntmrh., sem stóð að kaupum á því landi, heldur fyrrv. fjmrh., en það var gert eftir till. menntmrn. Þá minntist hv. þm. á, að það væri sín skoðun, að rétt væri að taka lán til þessa menntaskóla, vegna þess að þarna væri um að ræða byggingu, sem þyrfti að standa í mörg ár. Ég er ekkert langt frá því að vera sammála hv. þm. um þetta, og þess vegna var það einmitt, að ég beindi þeirri fyrirspurn til form. fjvn. á síðasta fundi n., þegar gengið var frá fjárl. til 3. umr., hvort það væri nokkuð á döfinni hjá ríkisstj., að þessi leið yrði farin í menntaskólamálinu. Hann sagði, að slíkar upplýsingar lægju ekki fyrir, og þá gerði ég aths. um, að veitt yrði 1/2 millj. í byggingu nýs menntaskólahúss í Reykjavík.
Þá var hv. þm. með nokkurn útúrsnúning út af orðum, sem féllu hjá mér um það, að það væri ekki skylda stjórnarandstöðunnar að búa til tekjuöflunarfrv. fyrir stj., en Sósfl. hefði hins vegar bent á tekjuöflunarleiðir, sem heppilegra mundi að fara heldur en þær, sem stj. hefði komið með. Sósíalistar lögðu til í samningsuppkasti, er lagt var fram við stjórnarsamningana í vetur, að ríki og bæjarfélög tækju sér fyrir hendur rekstur nokkurra fyrirtækja, er gæfu góðan arð, t.d. bílainnflutning, sem gæti orðið mjög arðvænlegur fyrir ríkið, auk þess sem þá yrði útrýmt hinum svarta markaði, sem er orðinn algerlega óþolandi. En þessi skilyrði sósíalista voru ekki samþ., þótt þarna gæti ríkissjóður fengið mikið fé. án þess að það kæmi til með að kosta almenning. Annað skilyrði sósíalista var það, að ef borga ætti niður vísitöluna með fé úr ríkissjóði, þá yrði þess aflað með sköttum á stórgróðann. Sósíalistar hafa því bent á fjáröflunarleiðir, en stjórnin hefur bara ekki viljað fara þær leiðir. En ég endurtek það, sem ég sagði fyrir skemmstu, að það hefur aldrei komið fyrir í sögu þingsins, að stjórnarandstæðingar hafi samið fjáröflunarleiðir fyrir stjórnina. Þeir hafa bent á leiðir, en þeir hafa ekki lagt fram frv. um þau efni. vísa ég því til baka öllum ásökunum í því efni.