29.04.1947
Sameinað þing: 49. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 662 í B-deild Alþingistíðinda. (648)

12. mál, fjárlög 1947

Steingrímur Aðalsteinsson:

Með því að þrátt fyrir þann niðurskurð, sem ríkisstj. lét gera á framlögum til verklegra framkvæmda í fjárlfrv., tel ég, að það í verulegum atriðum, ef framkvæmd verða, tryggi framhald þeirra, en vegna hinnar víðtæku heimildar, sem stjórnin hefur verið veitt til að fresta framkvæmdum, tel ég mér ekki fært að fylgja frv. og greiði ekki atkv. — (Til þeirrar grg. vísuðu síðan við atkvgr.: ÁkJ, ÁS. BrB, EOl, HermG, KTh).

Frv. afgr. sem lög frá Alþingi (A. 744).