17.05.1947
Efri deild: 134. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 673 í B-deild Alþingistíðinda. (663)
215. mál, flugvellir
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Vegna þess að hv. frsm. blandaði mínu nafni inn í umr., þykir mér rétt að gera grein fyrir því, að hann hefur töluvert misskilið mína afstöðu í málinu, eins og raunar málið allt í heild. Þó að ég sé honum sammála um niðurstöðuna, gat engum blandazt hugur um, að hv. þm. hefur ákaflega ófullkominn skilning á stöðu þeirra manna, sem eiga sæti í þessu ráði. Hæstv. ráðh. gerir sjálfsagt grein fyrir því atriði. En ég vil benda á, að þessir sérfræðingar eiga ekki að hafa störf sín í flugmálaráði sem aðalstörf, heldur eingöngu sem aukastörf, og þess vegna getur ekki komið til neinna mála að gera það að ævistarfi. Hitt finnst mér vera mjög heppilegt, sem stungið er upp á í brtt., sem fyrir liggja, að þeir séu skipaðir til misjafnlega langs tíma og sérstaklega séð fyrir því, að formaður ráðsins sitji þar lengur en aðrir, til þess að skapa samhengi í störfum ráðsins. Og ég skal játa, að að svo miklu leyti sem orðun þessarar till. kann að vera frá mér persónulega, þá er það helzta atriðið, sem ég hef lagt til, að ég hef lagt áherzlu á, að úr því að þessi háttur er hafður á skipuninni, sem ofan á varð, þá sé einnig tryggt, að sérfræðingarnir væru skipaðir til misjafnlega langs tíma og tryggt samhengi í starfi þeirra og að ekki væri stillt svo til, að það hlyti að vera sami ráðherra, sem fengi vald til skipunar þeirra beggja.
Varðandi það, sem hv. frsm. sagði um skipun ráðsins að öðru leyti, að hún mundi vera frá mér komin, er það alger misskilningur (HV: Aðallega þetta atriði.) Ekki kom það fram áðan. Ég hafði þvert á móti lagt áherzlu á., að allt ráðið yrði kosið hlutfallskosningu af þinginu, fimm menn. Og þá hefði auðvitað ekki verið ástæða til að hafa einn sérfræðinginn lengur en annan. Nú varð ekki samkomulag um þetta í ríkisstj., að þingið kysi alla fimm mennina hlutfallskosningu. Það var réttilega bent á það af hæstv. flugmrh., að hér er um að ræða vald, sem heyrir undir hann, og hann er með því frv., sem hér er lagt fram, að afsala valdi frá sér til lægra setts stjórnarvalds, þessarar nefndar, stjórnarvalds, sem í raun og vera má segja, að tilheyri stjórnarframkvæmdum frekar en löggjöf. Þegar á þetta var litið, treysti ég mér ekki til þess að ganga algerlega fram hjá þessum röksemdum og halda fram til hins ýtrasta, að allir mennirnir skyldu kosnir af Alþ. Það varð svo að samkomulagi milli okkar í stjórninni að hafa þennan hátt á. Ég geri ráð fyrir, að hæstv. menntmrh. hefði út af fyrir sig talið æskilegt að skipa alla mennina fimm, eins og ég hefði talið hitt æskilegt. Þetta er samkomulagstillaga, sem ég held, að hafi verið frá honum sprottin. Ég felldi mig ákaflega vel við till. og tel hana skynsamlega og í samræmi við margs konar aðra löggjöf frá þinginu og því síður en svo ástæðu til að kalla hana ólýðræðislega, eins og hv. frsm. vildi vera láta. (HV: Ég sagði það um afstöðu hv. þm. Barð.) Jú, og hann gat mín sérstaklega í því sambandi.
En þó að forsendur okkar séu misjafnar, þá erum við sammála um niðurstöðuna. Og allt er gott, þegar endirinn allra beztur verður, svo að ég held við megum vel við una.