20.05.1947
Neðri deild: 134. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 679 í B-deild Alþingistíðinda. (677)

215. mál, flugvellir

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Eins og tekið hefur verið fram, þá hef ég ekki getað orðið sammála um afgreiðslu þessa máls. Ég lít svo á, að þær breyt., sem í frv. felast, séu sízt til bóta, og mun ég því ekki fylgja því. En ég hef lagt fram brtt. við frv., og eru þær mjög á sömu leið og þær brtt., sem fram komu í Ed.

Ég skal taka það fram, að ég get sætt mig við, að brtt. mínar komi ekki fram fyrr en við 3. umr. Það er svo ekki ástæða til að ræða þetta frekar, vegna þess að ekki er búið að útbýta þskj. vegna hraða málsins, og mun ég geta fellt mig við, að frv. gangi nú til 3. umr.