06.05.1947
Neðri deild: 122. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 854 í B-deild Alþingistíðinda. (780)

195. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit

Gylfi Þ. Gíslason:

Það er um þessa brtt. eins og aðrar á undan henni og eftir á þskj. 725, að ég hef ekkert við það að athuga, að fjárhagsráð fjalli um þau verkefni, sem þar eru tilgreind. Hitt tel ég óeðlilegt, að slíkri nefnd séu sett svo nákvæm fyrirmæli í l., en eðlilegra, að ráðið taki sjálft sínar ákvarðanir, og segi ég því nei.