06.05.1947
Neðri deild: 122. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 855 í B-deild Alþingistíðinda. (783)

195. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit

Jón Sigurðsson:

Enda þótt ég sé samþykkur hv. flm. um, að tryggja beri hlut þeirra, er búa í fjarlægð frá kaupstöðum, þá er till. hans ekki svo vel orðuð, að forsvaranlegt sé að samþ. þetta, og í trausti þess, að fjárhagsráð veiti hinum fjarlægari héruðum meira öryggi í þessum efnum en þau eiga við að búa, segi ég nei.