06.05.1947
Neðri deild: 122. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 855 í B-deild Alþingistíðinda. (784)

195. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit

Jónas Jónsson:

Lagabálkur þessi er allur allfurðulegur. Fyrir tveimur árum var samþykktur hér lagabálkur í svipuðum dúr. sem átti að endurfæða þetta vesala land og þjóð. Nú er það skipulag, sem komið var á með hinum mesta hávaða. orðið ónýtt, og vil ég ekki taka þátt í að stofna til slíks aftur. En við þennan lagabálk hér hefur komið fram ein brtt. frá hv. þm. A-Húnv., sem mundi bjarga frv., ef hún yrði samþ., og segi ég því já.