13.05.1947
Neðri deild: 127. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 894 í B-deild Alþingistíðinda. (800)

195. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit

Skúli Guðmundsson:

Ég vil vísa til grg. hv. 1. þm. Árn. og einnig til þess, að ég er einn af flm. samkomulagstill. um orðalagið á þessari málsgr., sem hér er um að ræða brtt. við, og er sú till. á þskj. 820 frá meiri hl. fjhn. Auk þess vil ég benda á, að það er vafasamt, að hv. flm. þessarar brtt. á þskj. 824 sé mikil alvara með brtt., því að hann greiddi atkv. með brtt. frá hv. 4. þm. Reykv., sem, ef hún hefði verið samþ., hefði útilokað, að þessi brtt. kæmi undir atkv. Ég segi því nei.